Kylfingarnir Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru úr leik á Opna Abú Dabí-mótinu á Áskorendamótaröð Evrópu í golfi. Mótaröðin er sú næststerkasta í álfunni.
Niðurskurðurinn eftir tvo hringi miðaðist við fjögur högg undir par vallarins. Guðmundur var næstur því að komast áfram en hann endaði á tveimur höggum undir pari.
Axel lék á pari og var fjórum höggum frá því að fara áfram. Haraldur Franklín var á fjórum höggum undir pari fyrir annan dag í dag, en lék á fimm höggum yfir pari og var því fimm höggum frá því að fara áfram.