Valur verður Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu fjórða árið í röð á komandi keppnistímabili, samkvæmt spá Morgunblaðsins og mbl.is.
Valur fékk 204 stig þegar atkvæði spámannanna voru lögð saman en þar voru gefin stig frá einu (fyrir 10. sætið) upp í tíu (fyrir fyrsta sætið). Valskonur eru ellefu stigum fyrir ofan Breiðablik sem hafnaði í öðru sætinu í spánni.
Valskonur unnu Íslandsmeistaratitilinn á sannfærandi hátt í fyrra. Þær enduðu sex stigum fyrir ofan Breiðablik en voru með tíu stiga forystu þegar þrjár umferðir voru eftir og þar með orðnar meistarar. Þetta var fjórtándi meistaratitill Vals og sá fjórði á síðustu fimm árum. Valur hefur þrettán sinnum orðið bikarmeistari en þó aðeins unnið bikarinn einu sinni á undanförnum tólf árum.
Valur teflir fram gjörbreyttu liði í ár en alls hafa 16 leikmenn horfið á braut, þar með talin Arna Sif Ásgrímsdóttir sem missir af öllu tímabilinu vegna meiðsla. Þá er fyrirliðinn Elísa Viðarsdóttir ekki komin af stað eftir að hafa eignast barn í mars. Fimm af íslenskum leikmönnum Vals í fyrra leika nú í atvinnumennsku erlendis. Lára Kristín Pedersen, Bryndís Arna Níelsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir eru þar á meðal.
Stór hópur hefur komið á Hlíðarenda í staðinn. Meðal nýrra leikmanna eru Katie Cousins sem kom frá Þrótti og var einn besti leikmaður deildarinnar í fyrra, Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni sem var markadrottning deildarinnar fyrir tveimur árum og hin þrautreynda Málfríður Erna Sigurðardóttir sem lauk síðasta tímabili með því að spila sinn 300. leik í efstu deild en hún snýr aftur á Hlíðarenda eftir þriggja ára fjarveru.
Pétur Pétursson þjálfar Valsliðið áfram en þetta er hans sjötta tímabil með liðið.
Komnar:
Camryn Hartman frá Bandaríkjunum
12.4. Nadía Atladóttir frá Víkingi R.
24.2. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir frá Haukum
16.2. Málfríður Erna Sigurðardóttir frá Stjörnunni
9.2. Íris Dögg Gunnarsdóttir frá Þrótti R.
7.2. Hailey Whitaker frá Åland United (Finnlandi)
3.2. Helena Ósk Hálfdánardóttir frá Breiðabliki
1.2. Jasmín Erla Ingadóttir frá Stjörnunni
1.2. Katie Cousins frá Þrótti R.
1.2. Lillý Rut Hlynsdóttir frá FH (úr láni)
Farnar:
Hanna Kallmaier í FH
20.4. Eva Stefánsdóttir í Fram (lán)
18.4. Bryndís Eiríksdóttir í Þór/KA (lán - var í láni hjá HK)
18.4. Glódís María Gunnarsdóttir í Hauka (lán - var í láni hjá KH)
8.3. Sigríður Th. Guðmundsdóttir í Þrótt R.
29.2. Ásdís Karen Halldórsdóttir í Lilleström (Noregi)
27.2. Lise Dissing í Bodö/Glimt (Noregi)
20.2. Þórdís Elva Ágústsdóttir í Växjö (Svíþjóð)
20.2. Bryndís Arna Níelsdóttir í Växjö (Svíþjóð)
3.2. Ída Marín Hermannsdóttir í FH
1.2. Birta Guðlaugsdóttir í Víking R.
30.1. Málfríður Anna Eiríksdóttir í B 93 (Danmörku)
25.1. Lára Kristín Pedersen í Fortuna Sittard (Hollandi)
25.1. Laura Frank í AaB (Danmörku)
Rebekka Sverrisdóttir hætt
Arna Sif Ásgrímsdóttir úr leik vegna meiðsla
Fyrstu leikir Vals:
21.4. Valur - Þór/KA
27.4. Þróttur R. - Valur
2.5. Valur - Víkingur R.
8.5. Keflavík - Valur
14.5. Valur - Tindastóll
Lokastaðan:
1 Valur 204
2 Breiðablik 193
3 Stjarnan 151
4 Þróttur R. 140
5 Þór/KA 126
6 Víkingur R. 103
7 FH 103
8 Fylkir 47
9 Tindastóll 46
10 Keflavík 42