Söðlar um í háskólaboltanum

Bragi Guðmundsson í leik með Grindavík á síðasta tímabili.
Bragi Guðmundsson í leik með Grindavík á síðasta tímabili. mbl.is/Óttar Geirsson

Körfuknattleiksmaðurinn Bragi Guðmundsson mun í sumar skipta um lið í bandaríska háskólaboltanum. Gengur hann til liðs við Campbell Fighting Camels frá stórliði Nittany Lions.

Bragi, sem er tvítugur Grindvíkingur, gekk til liðs við Nittany Lions, körfuknattleikslið hins virta Penn State-háskóla í Pennsylvaníuríki, fyrir yfirstandandi tímabil.

Campbell Fighting Camels er körfuknattleikslið Campbell-háskóla í Blue Creek í Norður Karólínu-ríki.

Leikur liðið í efstu deild bandaríska háskólaboltans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert