Skallamörk Chelsea sökktu Tottenham (myndskeið)

Chelsea vann Tottenham 2:0 í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Stamford Bridge í Lundúnum í dag.

Trevor Chalobah kom Chelsea yfir eftir aukaspyrnu Conor Gallagher um miðbik fyrri hálfleiks en VAR kannaði vandlega hvort Marc Cucurella hefði brotið af sér í aðdraganda marksins áður en markið var dæmt gilt.

Nicolas Jackson bætti öðru marki við fyrir þá bláklæddu í síðari hálfleik og þar við sat.

Mörkin eru í spilaranum hér að ofan

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert