Sex koma til greina í apríl

Þjóðverjinn Kai Havertz hjá Arsenal er einn þeirra sex sem …
Þjóðverjinn Kai Havertz hjá Arsenal er einn þeirra sex sem koma til greina en lið hans er á toppi deildarinnar. AFP/Ben Stensall

Sex leikmenn hafa verið tilnefndir í kjöri ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á besta leikmanni deildarinnar í aprílmánuði.

Sexmenningarnir eru eftirtaldir:

Bruno Fernandes, Manchester United
Cole Palmer, Chelsea
Jean-Philippe Mateta, Crystal Palace
Jordan Pickford, Everton
Josko Gvardiol, Manchester City
Kai Havertz, Arsenal

Enginn þeirra er í hópi þeirra átta sem hafa hreppt titilinn leikmaður mánaðarins á þessu keppnistímabili.

Hægt er að greiða atkvæði á heimasíðu deildarinnar til hádegis á mánudaginn kemur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert