Páskarnir nálgast óðfluga og þá munu flestir njóta þess að borða gómsæt súkkulaðiðegg. Einmitt þess vegna er líka svo gott að fá sér hollt og gott að borða inn á milli. Þessir orkubix klattar eru dásamlega góðir og hollir. Það er því upplagt að baka þessa í vorhretinu. Þetta eru sætir og seigir bitar sem ljúft er njóta með síðdegisbollanum og til að jafna út allt páskagúffið.
Orkubix klattar
Um 12 klattar
- 4 Oatbix klattar
- 200 g hafrar
- 200 ml hunang
- 200 g ósaltað smjör
- 100 g dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Setjið smjörið og hunangið í pott og hrærið við vægan hita þar til það er alveg bráðnað.
- Settu það varlega til hliðar.
- Myljið Oatibix og bætið í pottinn ásamt höfrunum og blandið vel saman
- Hellið í smurt, grunnt bökunarform, passið að þjappa niður með bakinu á skeið þar til yfirborðið er slétt.
- Bakið í ofni við 180°C hita í 25 mínútur.
- Takið út og látið kökurnar vera í forminu þar til þær hafa kólnað alveg.
- Bræðið dökkt súkkulaði í örbylgjuofni og hellið svo ofan á bixið.
- Setjið inn í ísskáp í 2 klukkustundir til að kólna áður en er skorið í 12 bita.
- Berið fram með því sem ykkur langar til við hvaða tilefni sem er.