Eldri börn Kidman létu ekki sjá sig

Nicole Kidman var heiðruð fyrir ævistarf sitt á dögunum.
Nicole Kidman var heiðruð fyrir ævistarf sitt á dögunum. MATT WINKELMEYER

Börn Nicole Kidman sem hún ættleiddi með Tom Cruise létu ekki sjá sig þegar Kidman var heiðruð fyrir ævistarf sitt í LA á dögunum. 

Bella er 31 árs en Connor 29 ára. Þau hafa ekki verið í neinu sambandi við móður sína en þau sáust síðast saman árið 2007.

Kidman er sögð hafa lagt mikla áherslu á að þau mættu til verðlaunaafhendingarinnar. Þetta væri stór stund fyrir hana en hún er fyrst ástralskra kvikmyndaleikara til þess að hljóta þessi verðlaun (Life Achievement Award). 

Connor er sagður afar hliðhollur föður sínum Tom Cruise og Kidman bjóst ekki sérstaklega við að hann myndi mæta en hún vildi samt hafa öll börnin sín viðstödd og bauð þeim sérstaklega er haft eftir heimildarmönnum í Daily Mail.

Talið er að vera barnanna í Vísindakirkjunni komi í veg fyrir að þau rækti samband sitt við Kidman. Kidman var til dæmis ekki viðstödd brúðkaup Bellu árið 2015. Þá tók Kidman það afar nærri sér að þau skyldu ekki mæta í jarðarför föður hennar árið 2014. 

Kidman ásamt eiginmanni sínum, tveimur dætrum, systur sinni og frænku.
Kidman ásamt eiginmanni sínum, tveimur dætrum, systur sinni og frænku. AFP
Það eru ár og aldir síðan Kidman sást með Connor …
Það eru ár og aldir síðan Kidman sást með Connor syni sínum. STR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert