Íslendingarnir frábærir í sigri

Janus Daði Smárason skoraði átta mörk í dag.
Janus Daði Smárason skoraði átta mörk í dag. AFP/Ina Fassbender

Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason  fóru á kostum í 34:28 sigri Magdeburg á Lemgo í  þýsku 1. deldinni í hand­bolta í dag.

Janus skoraði átta mörk og Ómar sjö mörk í þessum frábæra leik og Gísli Þorgeir Kristjánsson bætti við þremur ísleskum mörkum en Íslendingarnir skoruðu rúman helming af mörkum Magdeburg í dag.

Liðið er á toppi deildarinnar með 52 stig, jafn mörg og Fuchse Berlin en eiga tvo leiki til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert