Stjörnuspá lau. 18. maí. 2024

Stjörnuspá
lau. 18. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.

20. apríl - 20. maí

Þú tekur stórt skref fram á við í verkefni sem hefur of lengi legið í ládeyðu. Notaðu hvert tækifæri til að leyfa sköpunargáfunni að blómstra.

21. maí - 20. júní

Þótt þú hafir fyllst efa og sjálfsgagnrýni að undanförnu öðlast þú í dag nýjan skilning á umhverfinu og stöðu þinni. Gættu þess að særa engan.

21. júní - 22. júlí

Það er gefandi að taka áhugamál sín alvarlega. Veltu vandamálunum fyrir þér og flýttu þér hægt í leit að lausn þeirra. Láttu óþolinmæðina þroska þig.

23. júlí - 22. ágúst

Vertu vakandi fyrir tækifærum sem gefast til þess að bæta vinnuaðstöðu sína á næstunni. Notaðu líka tækifærið og reyndu að auka tekjurnar, aðstæður eru hagstæðar.

23. ágúst - 22. september

Þú hittir fólk sem hefur er ekki alltaf í góðu sambandi við sannleikann. Reyndu að láta þér koma vel saman við það án þess að hafna eigin sannleika.

Vog
23. september - 22. október

Sýndu aðgát og sparsemi við gerð ferðaáætlana í dag. Ekki koma þér undan að ræða mikilvæg málefni, svo sem viðskiptasamninga eða útgjöld.

23. október - 21. nóvember

Þetta er góður dagur til að sinna verkum sem krefjast einbeitingar og sjálfsaga. Láttu það vera takmark þitt í dag að gefa skýr skilaboð.

22. nóvember - 21. desember

Orðspor þitt fer vaxandi og er farið að breiða úr sér, svo það er engin ástæða til að minna aðra á hverju þú hefur áorkað.

22. desember - 19. janúar

Það vefst fyrir þér að ganga frá máli sem þér hefur verið falið að leiða til lykta. Þú þarft bara að takast á við vandann með hetjulund.

20. janúar - 18. febrúar

Lífið er bæði flóð og fjara og nú mun eitthvað verða til að raska ró þinni. Persóna þín er staðföst og er áköf í því að sannfæra aðra um ágæti hugmynda þinna.

19. febrúar - 20. mars

Þú brýst út úr sama gamla farinu og finnur ný tækifæri og nýjar lausnir í dag. Mundu að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum og það ber líka að virða.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og