Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Innlent
Björgunarsveitir í Hveragerði, Selfossi og Eyrarbakka eru á leiðinni að sækja slasaðan mann sem datt af hestbaki skammt frá Maradal, norðan við Hengilinn á Suðurlandi.
meira
Óvíst er hvaða starfsemi verður í sögufrægu húsi að Vesturgötu 2 í miðborg Reykjavíkur. Stór áform um glæsilega mathöll eru komin á ís eftir að eigandi hússins sagði upp leigusamningnum við forsvarsmann þess verkefnis, Quang nokkurn Le, sem í dag kallar sig Davíð Viðarsson.
meira
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur rúmlega tvöfaldast frá aldamótum ef tekið er tillit til verðbólgu.
meira
Héraðsdómur Suðurlands hefur sakfellt Bergvin Oddsson, fyrrverandi formann Blindrafélags Íslands, fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum.
meira
Eiríkur Ingi Jóhannsson, frambjóðandi til embættis forseta Íslands, er að eigin sögn hreinskilinn. Hann segist óháður stjórnmálaöflum og peningavöldum með öllu.
meira
Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi hefur kært skopstælingu Halldórs Baldurssonar, teiknara Vísis, til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Er ástæðan sú að í teikningunni er Arnar settur í klæðnað sem vísar til einkennisklæðnaða nasista:
meira
Það að Baldur Þórhallsson kveðist ekki muna eftir því hvernig hann kaus í þjóðaratkvæðagreiðslum um Icesave hefur vakið þó nokkra athygli. Málið hefur nokkuð rifjast upp fyrir honum síðan, en þó ekki hvort hann kaus með Icesave-samningnum eða skilaði auðu.
meira
Niðurrif Íslandsbankahússins á Kirkjusandi hefur gengið vel. Áætlun verktaka miðar að því að fljótlega í haust verði húsið horfið af yfirborði jarðar. En miðað við gang mála standa vonir til að niðurrifinu ljúki seinnipart sumars.
meira
Íbúaráð hverfa nálægt Suðurlandsbraut hafa hvatt til þess að hámarkshraði þar verði lækkaður úr 60 km/klst. niður í 40 km/klst.
meira
Forsetafundir Morgunblaðsins og mbl.is halda áfram göngu sinni en á mánudag mætir Katrín Jakobsdóttir á forsetafund á Akureyri.
meira
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á fíkniefnalögum.
meira
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, frambjóðandi til embættis forseta Íslands, segist ein forsetaframbjóðenda hafa lofað því að þjóðin muni sjálf ráða örlögum auðlinda sinna og náttúruauðæfa með þjóðaratkvæðagreiðslum.
meira
Halla Tómasdóttir segist ekki ætla að verja skattasniðgöngu Richards Branson, eiganda Virgin-flugfélagsins. Hún starfar með honum á vettvangi The B-Team.
meira
Stytting náms til stúdentsprófs á sínum tíma var ekki óumdeild, eins og vænta mátti af svo veigamikilli breytingu. Síðla vetrar vakti tölfræðirannsókn hagfræðiprófessoranna Gylfa Zoëga og Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur mikla athygli, sérstaklega sú niðurstaða að einkunnir nemenda, sem höfðu útskrifast úr hinu nýja fyrirkomulagi, reyndust 0,5 lægri en hinna.
meira
Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, sem nú liggur illa særður á sjúkrahúsi þar í landi eftir að hafa orðið fyrir skotárás fyrr í vikunni, heimsótti Ísland snemmsumars árið 2017 og sat við það tækifæri hádegisverðarfund með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra, þar sem samskipti landanna voru til umræðu.
meira
Önnur dóttir Guðrúnar er trans. Það kom okkur mjög á óvart þegar hún sagði okkur frá því en það var haustið eftir að hún fermdist, segir Guðrún. Við veljum ekki hvaða verkefni við fáum sem foreldrar og verkefni okkar er fyrst og fremst að elska, styðja og standa með börnunum okkar.
meira
Samsýningin Samspil stendur nú yfir í Listasafninu á Akureyri. Sýningin er afrakstur vinnu ungmenna af erlendum uppruna á listavinnustofu þar sem þau unnu eigin verk innblásin af verkum í eigu safnsins. Úkraínsku systurnar Samira (á 14. ári) og Yasmina (á 12. ári) tóku þátt í verkefninu.
meira
Síðasta sólahring hafa um 70 skjálftar mælst við og í kvikuganginum við Svartsengi. Stærsti skjálftinn í nótt var 1,3 að stærð.
meira
Grunn lægð skammt norðaustur af Langanesi dregur dálítinn norðanstreng með svölu lofti yfir landið. Þá verður lítilsháttar snjó- eða slydduél norðanlands fram eftir degi, en bjart með köflum syðra.
meira
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld í póstkassa í fjölbýlishúsi um klukkan hálf tvö í nótt. Lögreglan gat slökkt eldinn án aðkomu slökkviliðs, en sameignin hafði fyllst af reyk og kom slökkvilið því á vettvang skömmu síðar og aðstoðaði við reykræstingu.
meira
fleiri