Katarski fjölmiðillinn Al Jazeera fordæmdi ákvörðun Ísraelsstjórnar að banna miðilinn vegna umfjöllun hans á stríðinu á Gasa.
„Við fordæmum þetta glæpsamlega athæfi Ísraela sem brýtur í bága við þau mannréttindi sem felast í því að hafa aðgang að upplýsingum,“ sagði í yfirlýsingu Al Jazeera á X.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, greindi frá því fyrr í dag að ríkisstjórnin hafi ákveðið einróma að banna miðilinn.
Shlomo Karhi, samskiptaráðherra Ísraels, sagði í yfirlýsingu að hann hefði gefið skipun þess efnis að loka ætti miðlinum, gera búnað hans upptækan og takmarka aðgang að vefsíðum Al Jazeera.