Eiga von á þriðja barninu

Sarah Stevenson, betur þekkt undir nafninu Sarah's Day, á von …
Sarah Stevenson, betur þekkt undir nafninu Sarah's Day, á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Kurt Tilse. Skjáskot/Instagram

Youtube-stjarnan Sarah Stevenson, sem heldur úti Youtube-rásinni Sarah's Day, er ófrísk að sínu þriðja barni með eiginmanni sínum, ljósmyndaranum Kurt Tilse. 

Stevenson stofnaði Youtube-rás sína fyrir tíu árum síðan og er í dag með yfir 1,5 milljón fylgjendur á rásinni og yfir 1,2 milljónir fylgjenda á Instagram. Á miðlunum deilir hún lífstíls- og heilsutengdu efni og gefur innsýn í fjölskyldulífið, en Stevenson og Tilse eiga tvo syni, Fox Ocean sem er fimm ára og Malakai Koa sem er tveggja ára. 

Alltaf verið draumur að eignast þrjú börn

Í myndbandi sem Stevensson deildi á Youtube-rás sinni sagði hún það alltaf verið draum hjónanna að eignast þrjú börn og að sá draumur væri nú að verða að veruleika. Hún sagði einnig frá því að barnið væri væntanlegt í október. 

Þá deildi Stevenson einnig færslu á Instagram-reikningi sínum þar sem hún tilkynnti gleðifregnirnar. 

View this post on Instagram

A post shared by Sarah (@sarahs_day)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert