Emil Barja tekur við Haukum

Kristinn Jónasson, formaður kkd. Hauka og Emil Barja handsala samninginn.
Kristinn Jónasson, formaður kkd. Hauka og Emil Barja handsala samninginn. Ljósmynd/Haukar

Ingvar Þór Guðjónsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Hauka í körfubolta, Emil Barja tekur við en hann skrifaði undir tveggja ára samning í dag.

Emil er fyrrum fyrirliði karlaliðs Hauka en hann lék þar í fimmtán ár eða allan sinn feril fyrir utan eitt tímabil með KR. Emil er einnig aðalþjálfari U16 ára landsliðs karla.

Haukar féllu úr úrslitakeppninni með tapi fyrir Stjörnunni í oddaleik í 8-liða úrslitum á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert