Sindri og ÍR í úrslit

ÍR-ingar eru komnir í úrslit
ÍR-ingar eru komnir í úrslit Kristinn Magnússon

Sindri frá Höfn sópaði Fjölni úr umspili 1. deildar karla í kvöld. Sindri mætir ÍR í úrslitum umspilsins.

Sindri heimsótti Fjölnismenn í Dalhús í kvöld og fór með 90:78 sigur af hólmi. Samuel Prescott skoraði 21 stig fyrir Sindra og Tómas Orri Hjálmarsson 20 og tók 9 fráköst að auki. Í liði heimamanna var Viktor Steffensen yfirburðamaður með 30 stig.

ÍR-ingar kafsigldu Þórsurum 117:62. Lamar Morgan skoraði 24 stig og Friðrik Leó Curtis 20. Í liði Þórs var Harrison Butler með 13 stig og 12 fráköst.

ÍR og Sindri mætast í úrslitum um hvort liðið fylgir KR upp í úrvalsdeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert