Spánn sterkari í síðari hálfleik

Alex Dujshebaev og liðsfélagar hans í Spáni unnu fjögurra marka …
Alex Dujshebaev og liðsfélagar hans í Spáni unnu fjögurra marka sigur í kvöld. AFP/Josep Lago

Spánn hafði betur gegn Serbíu, 32:28, í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2025 í handknattleik karla í Lalín á Spáni í kvöld.

Liðin mætast öðru sinni í Serbíu á sunnudag og er einvíginu síður en svo lokið.

Í kvöld var allt í járnum í fyrri hálfleik og staðan 15:14, Spáni í vil, að honum loknum.

Í síðari hálfleik náðu Spánverjar undirtökunum og komust fljótt þremur mörkum yfir, 19:16.

Undir lokin komst Spánn fimm mörkum yfir og það tvisvar áður en Serbía skoraði síðasta mark leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert