Teitur Örn Einarsson og liðsfélagar hans í Flensburg tryggðu sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld, þrátt fyrir tap gegn Skövde frá Svíþjóð í síðari leik liðanna í Flensburg í Þýskalandi í kvöld.
Leiknum lauk með eins marks sigri Skövde, 29:28, en Teitur Örn skoraði þrjú mörk í leiknum. Tryggvi Þórisson komst ekki á blað hjá Skövde en Flensburg vann einvígið, samanlagt 69:59.
Úrslitahelgin fer fram í Hamburg í Þýskalandi, dagana 25. og 26. maí