Guðrún Jóhannesdóttir matgæðingur með meiru býður upp á vikumatseðilinn að þessu sinni sem er svo sannarlega af betri gerðinni. Guðrún er einn stofnanda verslunarinnar Kokku á Laugavegi. Verslunin selur flest sem tengist því að elda og njóta matar, en Guðrún segist alla tíð hafa haft mjög „nördalegan“ áhuga á eldhúsi og mat og veit fátt skemmtilegra að en matreiða og bera fallega fram á borð.
Bestu samverustundir fjölskyldunnar eru í eldhúsinu og við matarborðið. Við njótum þess að matreiða saman og eiga góðar stundir þegar við snæðum saman. Við leggjum líka mikið upp úr því að leggja fallega á borð og núna þegar haustið er skollið á og það styttist óðum í veturinn ekkert hlýlegra en að prýða eldhúsið fallegum borðbúnaði í haustlitum,“ segir Guðrún.
Drauma vikumatseðillinn hennar Guðrúnar býður bragðlaukunum upp á ævintýralegt ferðalag og nú er bara að njóta.
Mánudagur – Cannelloni fyllt með spínat
„Pasta fyllt með spínati hefur alltaf verið í uppáhaldi á mínu heimili og er uppáhaldsmatur eldri dóttur minnar. Við gerum líka oft spínatlasagna og þegar við höfum tíma, heimagert ravioli með spínatfyllingu.“
Þriðjudagur – Laxa-taco með chili-hunangi
„Mér skilst að það sé vinsælt að gera Taco á þriðjudögum. Á mínu heimili er reyndar oftar taco með nautakjöti, en ég er almennt hrifnari af fiski en kjöti svo mér líst vel á þessa uppskrift. Maðurinn minn gerir alltaf kökurnar sjálfur, enda er það auðveldara en mann grunar.“
Miðvikudagur – Dýrðleg grænmetisbaka stútfull af nýju grænmeti
„Við gerum oft grænmetisböku í kvöldmatinn, góð leið til að losna við afganga af grænmeti úr skúffunni. Hún er seðjandi og svo er stundum afgangur sem er tilvalinn til að taka með í nesti í vinnuna daginn eftir.“
Fimmtudagur – Tagine með kjúkling að hætti Marokkó
„Ég er ótrúlega hrifin af Norður afrískri matargerð og það eru greinilega fleiri sammála mér því Tagine pottarnir eru ótrúlega vinsælir hjá okkur í Kokku. Svo er auðvelt að nálgast niðursoðnar sítrónur og allt krydd sem þarf hjá nágrönnum okkar í Hyalin neðst á Skólavörðustíg.“
Föstudagur – Ljúffengar laxasteikur með sítrónu og hvítlauk
„Mér finnst lax alltaf góður og væri alveg til í að borða hann oftar. Mér finnst hann góður bæði bakaður, steiktur og hrár og bestur ef hann fær að njóta sín með einföldu meðlæti. Lax, sítróna og hvítvín er fullkomin blanda.“
Laugardagur – Lambalæri borið fram með kartöflugratíni
„Það var gjarnan lambalæri á laugardagskvöldum þegar ég var að alast upp. Pabbi minn gerir besta lambalæri í heimi og það var eitt af því fyrsta sem ég lærði að elda. Þessi uppskrift er tilvalin fyrir mína fjölskyldu því báðar dæturnar eru hrifnari af kartöflugratíni en lambakjöti og sonurinn sem býr erlendis biður alltaf um lambalæri þegar hann kemur heim.“
Sunnudagur – Lúxus útgáfan af Egg Benedict
„Það er í miklu uppáhaldi hjá mér að fá mér hleypt egg í hádeginu á sunnudögum. Oftast með reyktum laxi eða silungi og þegar Steini er í stuði þá gerir hann hollandaise sósu handa mér.“