Þrefalt stærra en gosin í desember og janúar

Aðeins gýs úr einum gíg í eldgosinu á Reykjanesskaga og …
Aðeins gýs úr einum gíg í eldgosinu á Reykjanesskaga og hraunflæði er lítið. Hörður Kristleifsson

Eldgosið sem nú stendur yfir í Sundhnúkagígaröð er þrefalt stærra en en gosin sem urðu í  desember og janúar. Hins vegar er það mun minna en gosið í Fagradalsfjalli árið 2021.

Þetta sýna mælingar Náttúrufræðistofnunar, Landmælinga, Veðurstofunnar, almannavarna og Jarðvísindastofnunar, auk þess sem notast var við gögn erlendra aðila úr Pleiades gervitunglunum. Þá hefur kortlagning frá Eflu verkfræðistofu einnig verið notuð, að því er segir í umfjöllun á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. 

Hraunflæðið um einn rúmmetra á sekúndu 

Mælingar sýna að hraunflæðið var 1.100 - 1.200 rúmmetrar fyrstu klukkustundina en svo dró hratt úr því. Var flæðið komið niður í um 100 rúmmetra eftir 6-8 klukkustundir.

Áfram dró úr hraunrennsli sem var komið niður í um 15 rúmmetrar á sekúndu. Er hraunrennslið nú komið í um einn rúmmetra á sekúndu.

Flatarmálið náði tæpum 6 ferkílómetrum þann 17. mars en hefur lítið aukist síðan og er nú um 6,2 ferkílómetrar.

Rúmmálið er talið vera um 34 milljónir rúmmetra, sem gæti samsvarað um 30 milljón rúmmetrum af þéttu bergi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert