Ólöf Ása ráðin skólastjóri Hrafnagilsskóla

Ólöf Ása Benediktsdóttir tekur við sem skólastjóri Hrafnagilsskóla þann 1. …
Ólöf Ása Benediktsdóttir tekur við sem skólastjóri Hrafnagilsskóla þann 1. ágúst 2024. Samsett mynd

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur ákveðið að ráða Ólöfu Ásu Benediktsdóttur í stöðu skólastjóra Hrafnagilsskóla. Hún tekur formlega við stöðunni þann 1. ágúst.

Sveitastjórnin greinir frá þessu í fréttatilyknningu. Ólöf Ása hefur starfað við Hrafnagilsskóla frá 2005, lengst af sem umsjónarkennari en veturinn 2016-2017 leysti hún af sem aðstoðarskólastjóri.

Hún lauk grunnskólakennaraprófi B.ed. af raungreinasviði árið 2005 frá Háskóla Akureyrar og klárar í vor meistarapróf í menntavísindum með áherslu á stjórnun og forystu í lærdómssamfélagi frá sama skóla.

Þá hefur Ólöf Ása einnig starfað sem stundakennari við Háskólann á Akureyri ásamt því að starfa fyrir Menntamálastofnun við endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla.

Sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 2. maí að fenginni umsögn skólanefndar. Í bókun sveitarstjórnar koma jafnframt fram þakkir til Hrundar Hlöðversdóttur fyrir þá góðu vinnu sem hún hefur lagt af mörkum fyrir skólasamfélag Eyjafjarðarsveitar undanfarin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert