Eldur logar í ruslageymslu

Dælubílar eru á leið á vettvang.
Dælubílar eru á leið á vettvang. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dælubílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið í útkall í Hafnarfirði þar sem tilkynning barst um eld í ruslageymslu við fjölbýlishús.

Þetta staðfestir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu. 

Hann segir tilkynninguna hafa borist klukkan 8.05 í morgun. Frekari upplýsingar um málið var ekki að fá enda dælubílar ekki komnir á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert