Bláfugl sagt hafa skilað flugrekstarleyfi

Bláfugl er sagt hafa skilað inn flugrekstrarleyfi.
Bláfugl er sagt hafa skilað inn flugrekstrarleyfi. Ljósmynd/Gunnar Flóvenz

Fraktfélagið Bláfugl hefur skilað inn flugrekstrarleyfi sínu.

Frá þessu er greint á vef Viðskiptablaðsins.

Er þar vísað í lista Samgöngustofu yfir handhafa flugrekendaskírteina þar sem Bláfugl er ekki lengur á lista. 

Bláfugl var stofnað árið 2000 og hefur starfað undir nafninu Bluebird Nordic. Félagið er í eigu Litháensku samsteypunnar Avia Solutioans Group.

Félagið keypti Bláfugl af BB Holding ehf. og hópi sem á Air Atlanta árið 2020.

Bláfugl hefur að mestu sinnt fragtflutningi og meðal annars yfirtók Icelandair flugfélagið og gerði að dótturfyrirtæki Icelandair group.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert