Úthlutun lóða hafin í nýju hverfi í Kópavogi

Áhersla verður lögð á góðar samgöngutengingar fyrir gangandi, hjólandi og …
Áhersla verður lögð á góðar samgöngutengingar fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur í Vatnsendahvarfi. Mynd/Kópavogsbær

Opnað hefur verið fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga úthlutunar í Vatnsendahvarfi, sem er nýjasta hverfið í Kópavogi.

Í tilkynningu á vef Kópavogsbæjar kemur fram að í þessum fyrsta áfanga verði sex lóðum fyrir fjölbýlishús úthlutað.

Spennandi að fá nýtt hverfi í Kópavoginn

Í hverfinu er gert ráð fyrir 500 íbúðum í fjölbýli, par- og raðhúsum auk einbýlis. Stefnt er að því að úthluta öllum lóðum á árinu en í nokkrum áföngum.

„Það er gríðarlega spennandi að fá nýtt hverfi í Kópavoginn og við finnum að það er mikill áhugi, enda góð staðsetning á frábærum útsýnisstað í nálægð við mikla náttúrufegurð. Áhersla er lögð á fallega og umhverfisvæna byggð í Vatnsendahvarfi með góðum samgöngutengingum fyrir alla ferðamáta.

Þá munu íbúar njóta góðs af þeirri þjónustu sem fyrir er í nærumhverfinu auk þess sem reistur verður leikskóli og grunnskóli fyrir 1. til 4. bekk í þessu nýja hverfi.“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs. 

Stefnt er að því að úthluta öllum lóðum á árinu …
Stefnt er að því að úthluta öllum lóðum á árinu en í nokkrum áföngum. Mynd/Kópavogsbær

Verði byggingarhæfar eftir ár

Þá segir að byggð í Vatnsendahvarfi muni falla vel að nærliggjandi svæðum og gróður og náttúra fléttist inn í opin svæði hverfisins. Áhersla verður lögð á góðar samgöngutengingar fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur.

Hverfið stendur á Vatnsendahæð og afmarkast af Álfkonuhvarfi, Turnahvarfi, Kleifakór og Arnarnesvegi.

Opið er fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga til 21.maí og stefnt er að því að lóðir í fyrsta áfanga verði byggingarhæfar í apríl 2025.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert