Gæsluvarðhald framlengt yfir tveimur mönnum

Mennirnir tveir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því 28. desember.
Mennirnir tveir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því 28. desember. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem úrskurðaðir voru í vikulangt gæsluvarðhald þann 28. desember vegna skotárásar í Hafnarfirði á aðfangadagskvöld hefur verið framlengt um eina viku eða til 11. janúar.

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði mennina tvo í vikulangt gæsluvarðhald sem átti að renna út í dag en hefur nú verið framlengt um eina viku að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert