Nýjasti silfurrefur Hollywood

Mike Myers heiðraði góðvinkonu sína, Nicole Kidman.
Mike Myers heiðraði góðvinkonu sína, Nicole Kidman. Samsett mynd

Gamanleikarinn Mike Myers gekk rauða dregilinn á 49. AFI Life Achievement-verðlaunahátíðinni í Los Angeles á laugardag.

Myers, 60 ára, var meðal fjölmargra stjarna sem lögðu leið sína í Dolby-leikhúsið til að heiðra áströlsku leikkonuna Nicole Kidman fyrir framlag hennar til leiklistar. Leikarinn hefur lítið sést opinberlega síðustu ár og vakti hann því mikla athygli viðstaddra.

Myers, best þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á við Austin Powers og Shrek, skartaði nýjum hárlit á rauða dreglinum, en leikarinn var afar glæsilegur með gráhvítt hár, sannkallaður silfurrefur. 

Myers og Kidman kynntust árið 1993 þegar ástralska Óskarsverðlaunaleikkonan steig á svið Saturday Night Live sem gestastjórnandi. Myers var hluti af leikaraliði þáttarins á árunum 1989 til 1995. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.