Kaffibollinn er góður en hann er enn betri í fallegu umhverfi. Þegar við erum á ferðalagi þá er gott að gefa sér tíma og setjast niður til að njóta kaffibollans frekar en að taka hann með sér á þeytingi um stræti.
Blaðamaður ferðavefs Mbl.is drekkur mikið kaffi og er haldinn mikilli fullkomnunaráráttu þegar kemur að kaffi. Á nýlegu ferðalagi um Feneyjar reyndi talsvert á þessa áráttu um besta kaffibollann í besta umhverfinu.
Með þessum pistli er markmiðið að deila lífsreglum blaðamanns um kaffi og gefa fólki um leið hugmyndir um hvar leynast bestu kaffistaðirnir í Feneyjum.
Rétt eins og morgunverðurinn á hótelinu þá er hótelkaffi aldrei gott. Það er alltaf betri ákvörðun að fara út af hótelinu og finna sér sjarmerandi kaffihús í sólinni. Ítalskt kaffi er sem betur fer alltaf gott og kaffihúsin eru fjölmörg í Feneyjum. Hæst ber að nefna hið fornfræga Café Florian sem er á Markúsartorginu og er elsta kaffihúsið á Ítalíu. Þar er líka gaman að vera á kvöldin því þá er hægt að hlusta á lifandi tónlist.
Í Feneyjum fær maður sér „strætó“ passa í bátana og þá eru manni allir vegir færir. Upplagt er að sigla út í Giudecca-eyjuna og setjast við höfnina þar. Giudecca er fáfarnari staður en afar sjarmerandi. Þar nýtur maður meira næðis frá ágangi túristanna og getur horft úr fjarlægð yfir fenið á iðandi mannlíf aðaleyjunnar og virt fyrir sér allar fallegu byggingarnar. Þeir sem eru til dæmis að heimsækja Feneyjatvíæringinn geta tekið bátinn frá Arsenale eða San Zaccaria og siglt út í Giudecca á örfáum mínútum. Það gæti verið betri kostur en að setjast niður á aðal túristagötunni hjá Arsenale.
Einn daginn skoðaði sú sem þetta skrifar kirkjugarðinn í Feneyjum sem er afar sjarmerandi staður sem hægt er að mæla með að allir kíki í. Ítalskir kirkjugarðar eru miklu skrautlegri en maður á að venjast og er hvert einasta leiði skreytt með tilkomumiklum gerviblómvöndum og á hverjum legsteini er mynd af hinum látna.
Þegar þangað var komið var upplagt að halda ferðinni áfram úti í Murano-eyju sem þekkt er fyrir glerlistaverk. Sú sem þetta skrifar hafði þó takmarkaðan áhuga á glerverksmiðjunni og lét sér nægja góðan kaffibolla á torgi þessarar sjarmerandi eyju.
Við hlið Gyðingasafnsins í Feneyjum er falinn gimsteinn. Þar er veitingastaðurinn Ba Ghetto sem reiðir fram ýmsa rétti sem eiga rætur sínar að rekja til menningarheims gyðinga. Staðurinn er í lokuðum garði með útsýni yfir eitt fenið. Þar er tilvalið að setjast niður og fá sér kaffi eða veitingar. Andrúmsloftið er rólegt og heimamenn áberandi þar.
Það er hægt að labba yfir brú sem leiðir mann út í Dorsoduro-hverfið. Þar er að finna Peggy Guggenheim-listasafnið sem er einstakt safn með mikla og skemmtilega sögu. En Guggenheim var afar litríkur persónuleiki sem lifði ævintýralegu lífi í Feneyjum. Listasafnið er fyrrum heimili hennar og þar má sjá ýmsa dýrgripi. Þar er líka gott kaffihús í litlum garði innan veggja safnsins. Margir frægir leggja leið sína í safnið en þess ber að geta að blaðamaður rakst á Hollandskonung í heimsókn sinni á safnið.
Reynsla þeirrar sem þetta skrifar er þannig að maður veit aldrei hvenær næsti kaffibolli verður. Sérstaklega þegar maður er haldinn þessari fullkomnunaráráttu. Hefur hún því vanið sig á að panta alltaf tvo tvöfalda espresso á hverjum áningarstað. Það er hvort eð er alltaf svo lítið í hverjum bolla, í rauninni.