Niðurnjörvuð lög um strandveiðar

Veiðarnar hefjast í byrjun maí og mega standa yfir fram …
Veiðarnar hefjast í byrjun maí og mega standa yfir fram í lok ágúst. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Ég er ekki viss um að allir átti sig á því að það eru fá lög, held ég hreinlega, eins niðurnjörvuð í sjávarútveginum og um strandveiðar,“ sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra þegar hún svaraði fyrirspurn Eyjólfs Ármannssonar um strandveiðar á Alþingi í vikunni.

Veiðarnar hefjast í byrjun maí og mega standa yfir fram í lok ágúst. Hver bátur má veiða á handfæri í 48 daga á tímabilinu.

Eyjólfur benti á að í fyrra var strandveiðitímabilið stöðvað 11. júlí, í hittifyrra var það stöðvað 21. júlí af því að svokallaður 5,3% pottur var búinn. Spurningin er þessi, sagði Eyjólfur: „Mun hæstvirtur matvælaráðherra skella í lás á miðju strandveiðitímabili verði þessi pottur búinn eða mun hún bæta í pottinn til að tryggja það að strandveiðimenn og sjávarbyggðir landsins fái 48 daga til að stunda strandveiðar í sumar?“

Fylgir ráðgjöf Hafró

Bjarkey sagði í svari sínu að Hafrannsóknastofnunin gæfi út ákveðinn kvóta og hún hygðist fylgja ráðgjöf stofnunarinnar. Af þessum kvóta færu 5,35% í félagslega pottinn og þar undir væru strandveiðarnar. Fiskistofa hefði auglýst eftir umsóknum og í pottinum væru 10 þúsund tonn af þorski.

„Þegar ég fékk bókina á borðið hjá mér áttaði ég mig á því að það er í rauninni fátt sem hægt er að gera sem einhverju skiptir, svona verulega, nema það fari fyrir Alþingi og gerðar verði lagabreytingar. Reglugerðarbreytingar eru ekki mjög auðveldar. Það er ekki hægt að tryggja 48 daga úthald í núverandi lagaumhverfi.“

Nánar í laugardagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 412,71 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 502,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 327,07 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 261,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 142,81 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 152,49 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,62 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Bobby 7 ÍS 367 Sjóstöng
Þorskur 82 kg
Steinbítur 14 kg
Samtals 96 kg
17.5.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 96 kg
Ýsa 10 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 111 kg
17.5.24 Hafbjörg NS 16 Handfæri
Þorskur 71 kg
Samtals 71 kg
17.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 77 kg
Samtals 77 kg
17.5.24 Bobby 1 ÍS 361 Sjóstöng
Þorskur 54 kg
Samtals 54 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 412,71 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 502,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 327,07 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 261,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 142,81 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 152,49 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,62 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Bobby 7 ÍS 367 Sjóstöng
Þorskur 82 kg
Steinbítur 14 kg
Samtals 96 kg
17.5.24 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 96 kg
Ýsa 10 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 111 kg
17.5.24 Hafbjörg NS 16 Handfæri
Þorskur 71 kg
Samtals 71 kg
17.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 77 kg
Samtals 77 kg
17.5.24 Bobby 1 ÍS 361 Sjóstöng
Þorskur 54 kg
Samtals 54 kg

Skoða allar landanir »